Fyrir leik kvöldsins situr Einherji í 6. sæti deildarinnar með 14 stig en Einherjar gerðu 1-1 jafntefli við Augnablik, heima, á laugardag. KF eru í 3. sæti deildarinnar með 22 stig og burstuðu Reynismenn í Sandgerði, 5-1, á laugardag.
Við hvetjum Vopnfirðinga að sjálfsögðu til að fjölmenna á Ólafsfjörð og styðja strákana okkar!
Á 67. mínútu missti Einherji Jivko út af meiddan en þetta var annar leikmaðurinn sem Einherji missti í leiknum. Í fyrri hálfleik fór Bjartur út af fyrir Árna Fjalar. Guðni Þór kom inn fyrir Jivko og þurfti að standa í miklum hlaupum fremst á vellinum því KV juku pressuna enn meir eftir markið. Eftir hálffæri, færi og darraðadans í teig Einherja - og að loknum 7 mínútum í uppbótartíma - flautaði dómari leiksins leikinn af. Fyrstu þrjú stigin komin í hús. Fögnuður Einherjadrengja var mikill að leik loknum enda mikill léttir að vinna fyrsta leikinn á heimavelli. Næsti leikur Einherja er á Vilhjálmsvelli á fimmtudag en þá heimsækjum við nágranna okkar í Hetti og Hugin.
Barinn verður opinn og verður húsið opnað kl. 21. Barsvar - þar sem þemað er Einherji - hefst svo fljótlega í framhaldi af því og leikmannakynningin verður einnig á sínum stað ásamt leikmönnum meistaraflokks karla. Þá verður einnig hægt að panta ársmiða, afmælistreyju eða afmælispeysu og skrá sig fyrir áheitum. Aldurstakmark er 16 ára til 23:00, en 18 ára eftir það.
Sjáumst í kvöld og hitum upp fyrir tímabilið í heild og fyrsta heimaleik sumarsins, sem er á morgun klukkan 14:00!
Skráning er hjá Víglundi Páli á facebook eða í síma 858-1079 en skráningu lýkur á fimmtudag.
Ekki draumabyrjun hjá Einherja en kannski eðlileg miðað við þær æfingaaðstæður sem liðið hefur búið við. Nóg af stigum eru í pottinum og mótið aðeins rétt að byrja. Drengirnir mætta grjótharðir til leiks á laugardag þegar KV kemur í heimsókn á Vopnafjarðarvöll. Fyrsti heimaleikur sumarsins — fjölmennum á völlinn og tökum „vel“ á móti Vesturbæingum.
Varamenn sem komu við sögu voru Guðni Þór og Eiður Orri. Eiður Orri var að spila sinn fyrsta meistaraflokksleik í Íslandsmóti og kemst í hóp nokkurra annarra leikmanna í sögu félagsins sem leikið hafa sinn fyrsta leik í deildakeppni fyrir 15 ára afmælisdaginn sinn. Hann er mögulega sá allra yngsti sem leikið hefur fyrir félagið. Til hamingju með fyrsta leikinn Eiður!
En þrátt fyrir tapið var bjart yfir Einherjum á heimleiðinni enda engin ástæða til að hengja haus eftir eitt tap. Það var ekki auðvelt fyrir þjálfarann, Akim, að stýra liðinu fyrir og á meðan á leik stóð. Hann, ásamt Javon og Jared, kom til landsins daginn áður og því eðlilegt að liðið hökti aðeins við þessar kringumstæður. Vonandi nær liðið að stilla saman strengi fyrir næsta leik sem er gegn Sindra, á Höfn á sunnudag kl. 16.
Einherjamenn mæta keikir til leiks í Borgarnesi en þetta er aðeins annar leikur liðsins síðan í september. Undirbúningstímabilið hefur verið strembið en gott. Nokkrar leikmannabreytingar hafa orðið á liði Einherja frá því síðasta sumar. Fjórir leikmenn hafa yfirgefið félagið og nokkrir eru hættir. En liðið sem eftir er er það sem skiptir máli. Nokkur kjarni af reyndum heimastrákum myndar góða liðsheild ásamt búlgörsku Vopnfirðingunum og ungum og efnilegum drengjum sem fá að öllum líkindum mikilvæg tækifæri í sumar.
Þjálfarinn, Akim Armstrong, er frá Trínidad og Tóbagó. Hann er ekki enn kominn til landsins vegna skriffinnskutregðu í umsóknarferli um dvalar- og atvinnuleyfi. Hann kemur til landsins á föstudag ásamt tveimur öðrum Trínidödum og verða þeir allir mættir til leiks í Borgarnesi á laugardag. Akim spilar sem framherji en með honum kemur markmaður og kantmaður. Það er ástæða til að líta björtum augum til knattspyrnusumarsins hjá Einherja. Vonandi gera sem flestir Einherjar á suðvesturhorninu sér ferð í Borgarnes á laugardag til að styðja strákana okkar. Leikurinn á að hefjast klukkan fjögur en gæti færst fram til tvö — fylgist með! Áfram Einherji! |