Haustgleðin nálgast - Skráið ykkur sem fyrst25.9.17
Haustgleði Einherja fer fram nk. laugardagskvöld. Haustgleðin er uppskeruhátíð meistaraflokkanna okkar sem og fjáröflunarkvöld fyrir félagið. Húsið opnað kl. 19:30 og boðið upp á fordrykk. Borðhald hefst kl. 20 en aðalréttur kvöldsins er lambakjöt með kartöflugratín, sveppasósu og meðlæti. Í eftirrétt er kaffi og súkkulaðikaka. Dagskránni svipar mjög til styrktarkvölda undanfarinna ára; treyjuuppboð, happdrætti og skemmtiatriði í boði meistaraflokka. Þá verða viðurkenningar meistaraflokka afhentar fyrir árangur sumarsins. Það er síðan í höndum hinnar goðsagnakenndu Danshljómsveitar Friðjóns Jóhannssonar að loka hátíðinni með gamaldags dansleik eins og þeim einum er lagi. Verð á hátíðina er 7000 krónur og eru allir velkomnir! |
|
Uppskeruhátíð yngri flokka25.9.17
Síðastliðinn fimmtudag komu iðkendur yngri flokka félagsins saman til að fagna uppskeru sumarsins. 63 börn æfðu knattspyrnu með Einherja þetta árið auk blakiðkenda. Þess má geta að í Vopnafjarðarskóla eru 87 börn. Uppskeruhátíðin var ánægjuleg í alla staði. Formaður félagsins hélt stutta tölu um mikilvægi krakkanna í starfi félagsins, því án þeirra væri félagið ekkert. Þau eru framtíðin og grundvallast meistaraflokkar félagsins á iðkun þeirra. Krakkarnir fengu viðurkenningar fyrir æfingar ársins, teknar voru myndir og að lokum fengu krakkarnir ljúffengar pizzur sem Hótel Tangi gaf okkur. Við þökkum öllum sem komu að þessari góðu stund fyrir samveruna. Áfram Einherji! |
Haustgleði framundan13.9.17
Laugardagskvöldið 30. september ætla Einherjar að koma saman, gera upp sumarið og skemmta sér. Haustgleðin er uppskeruhátíð meistaraflokka félagsins sem og fjáröflun. Allir Vopnfirðingar, Einherjar nær og fjær, velunnarar og vinir eru hvattir til þess að mæta og gleðjast með félaginu. Dagskrá og skráning verðu auglýst síðar. |
fRÉTTIR AF STARFINU: Getraunir og gefins sigrar13.8.17
Langt er liðið á sumarið og þó lítið hafi verið í fréttum hér á síðunni er mikið í fréttum. Meistaraflokkarnir okkar eru enn á fullu í 3. og 2. deild og yngri flokkar og B-lið hvergi nærri hætt. Ekki hefur gengið nógu vel hjá meistaraflokki karla síðastliðinn mánuð en síðasti sigur þeirra kom gegn KF þann 30. júní. Í kjölfarið gerði liðið þjú jafntefli og tapaði tveimur leikjum. Liðið situr í 6. sæti 3. deildar með 19 stig. Næsti leikur þeirra er gegn Vængjum Júpíters á Vopnafirði næsta laugardag. Gengi meistaraflokks kvenna hefur verið upp og ofan en þær unnu tvo leiki í röð í byrjun júlímánaðar. Næstu leikir á eftir voru gegn sterkum liðum, Völsungi og Aftureldingu/Fram, sem báðir töpuðust 1-0. Stelpurnar eru nú í 8. sæti 2. deildar með 7 stig. Næsti leikur þeirra er á föstudagskvöld gegn Fjarðabyggð/Hetti/Leikni á Vopnafirði. Yngri flokkar tóku m.a. þátt í Strandarmóti, Reycup og Króksmóti auk þess að leika enn í Íslandsmóti í fjölmörgum flokkum. B-lið meistaraflokks karla er komið í úrslit Launaflsbikars UÍA. Liðið komst í gegnum 8-liða og undanúrslit þannig að andstæðingar liðsins gáfu leikina. Þó svo að gleðilegt sé að komast í úrslitin er ekki víst að allir leikmenn liðsins sé ánægðir með að fá ekki að spila fótbolta. Staður og stund úrslitaleiksins hafa ekki verið ákveðin en leikið verður gegn erkifjendunum í Leikni Fáskrúðsfirði. Þá er getraunastarf Einherja komið af stað aftur eftir sumarhlé. Nánari upplýsingar um það veitir Bjartur en hægt er að hafa samband við hann á bjartur@einherji.net. |
sjö leikir á fimm dögum10.7.17
Síðasta vika var viðburðarík hjá Einherja en lið okkar léku sjö leiki frá miðvikudegi til sunnudags. Á miðvikudag spilaði 5. flokkur kvenna tvo leiki í Íslandsmótinu. Höttur og Sindri/Neisti komu í heimsókn til Vopnafjarðar en hvert þessara þriggja liða lék tvo leiki. Einherji vann leik sinn gegn Hetti 8-0 en tapaði 1-2 fyrir Sindra/Neista. Á miðvikudagskvöld lék B-lið meistaraflokks karla við UMFB. B-liðið er að mestu leyti skipað ungum leikmönnum úr 2. og 3. flokki félagsins ásamt varamönnum úr meistaraflokki og nokkrum gömlum kempum. Fjöldi fólks mætti til að styðja strákana sem unnu leikinn 5-0. Á föstudag héldu taplausar stúlkur í 4. flokki kvenna austur í Egilsstaði að spila við Fjarðabyggð/Hött/Leikni. Stelpurnar afgreiddu þessi ,,þrjú lið'' með 2-4 sigri og eru því enn á toppi riðilsins. Næsti leikur þeirra er á Akureyri á fimmtudaginn gegn KA 2. Meistaraflokkarnir okkar héldu suður til Reykjavíkur á laugardagsmorgun. Drengirnir léku gegn KFG kl. 13 á Samsung-vellinum en fyrir leikinn voru þessi tvö lið jöfn að stigum í 3. og 4. sæti deildarinnar. Ekkert var skorað í leiknum og endaði hann 0-0. Nokkuð sterkt útivallarstig sem drengirnir sóttu í Garðabæinn. Stelpurnar mættu Augnablik á Kópavogsvelli kl. 14 og töpuðu 0-3. Þær spiluðu annan leik daginn eftir, þá gegn Hvíta riddaranum á Tungubakkavelli kl. 14. Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum, hvort með 1 stig. Einherjastúlkurnar lyftu sér þó upp í 4 stig með sigri í leiknum. Það var glæsimark Thelmu Guðnýjar, beint úr aukaspyrnu, sem skildi liðin að. Til hamingju með fyrsta sigurinn stelpur! Þess má geta að á sunnudagskvöld átti B-liðið að spila við Wintris á Vopnafjarðarvelli en þeim leik var aflýst vegna manneklu hjá Wintris-mönnum. |
Þriggja leikja helgi að baki2.7.17
Vopnfirska sumarið einkennist af stóru leyti af knattspyrnu. Hvort sem það eru æfingar, leikir eða umræður. Stór hluti samfélagsins er hluti af Einherja og knattspyrnuviðburðir Einherja eru ótrúlega vel sóttir. Þrír flokkar Einherja spiluðu leiki um helgina en helgin hófst með ferðalagi meistaraflokks karla á Ólafsfjörð á föstudag. Kl. 20 á föstudagskvöld fór fram leikur KF og Einherja. Fyrir leikinn var KF með 12 stig en Einherji 13. Stuðningsmenn Einherja fjölmenntu á leikinn en um tuttugu stuðningsmenn studdu drengina úr stúkunni. Leikurinn bauð upp á mikla dramatík. Á 85. mínútu fengu heimamenn vítaspyrnu sem Oskars, markvörður Einherja, gerði sér lítið fyrir og varði glæsilega. Stuttu seinna fékk leikmaður KF að líta rauða spjaldið eftir groddaralega tæklingu á Karol. Staðan var 0-0 eftir venjulegan leiktíma og leit flest út fyrir markalaust jafntefli. Það var á 92. mínútu sem Viktor Daði var tekinn niður innan vítateigs heimamanna og fengu Einherjar vítaspyrnu. Todor fór á punktinn og skoraði. Mikill fögnuður braust út í leikslok enda mikilvægur sigur í toppbaráttunni. Með sigrinum fór Einherji í 16 stig og situr í fjórða sæti deildarinnar, þremur stigum frá toppliðinu. Í gær, laugardag, tók 4. flokkur kvenna á móti sameiginlegu liði Tindastóls, Hvatar og Kormáks. Fyrir leikinn var Einherjaliðið á toppi riðilsins með fullt hús stiga, 9 stig. Það fór svo að Einherji vann leikinn, 1-0, með marki frá Amöndu Lind Elmarsdóttur. Einherjastúlkur eru því enn á toppi riðilsins; nú með 12 stig! Í dag, sunnudag, var komið að meistaraflokki kvenna. Þær spiluðu við Fjölni kl. 14. Stelpurnar lentu 0-2 undir snemma leiks en náðu að minnka muninn á 34. mínútu og staðan í hálfleik 1-2. Barátta Einherjastúlkna dugði ekki til að ná jöfnunarmarki í seinni hálfleik og 1-2 tap því staðreynd. Stuðningsmönnum og leikmönnum ber að þakka fyrir frábæra knattspyrnuhelgi, heima og úti. Þá fá Kiddi og Enok sérstakar þakkir fyrir kvikmyndatöku og útsendingu frá öllum leikjunum. |
Ljósmynd vikunnar28.6.17
Ljósmynd vikunnar er tekin á Seyðisfirði fyrir rúmum 40 árum síðan. Myndin er líklega tekin árið 1975 og er af leikmönnum 3. flokks drengja en einhverjir í hópnum virðast vera að spila einn flokk upp fyrir sig. Ekki er vitað hvort liðið hafi spilað við Huginn þennan dag eða hvort um var að ræða einhverskonar mót. Liðið er klætt í hvíta og bláa langröndótta búninga sem voru í nokkur ár búningar félagsins. Undir myndinni má sjá nöfn leikmanna. Ef einhver getur veitt frekari upplýsingar um tilefni myndarinnar má sá hinn sami senda athugasemdir á bjartur2008@gmail.com. |
fÓTBOLTI Á VOPNASKAKI23.6.17
Bæjarhátíð okkar Vopnfirðinga, Vopnaskak, er nú í fullum gangi þó svo að veðrið leiki ekki við okkur. Eins og á fyrri hátíðum eru knattspyrnuleikir Einherja hluti af dagskránni. Fyrsti leikur hátíðarinnar fór fram á þriðjudaginn þegar 4. flokkur kvenna tók á móti Völsungi frá Húsavík. Fyrir leikinn höfðu bæði lið unnið sína alla sína leiki og því í baráttu á toppnum. Einherjar gerðu sér þó lítið fyrir fyrir og sigruðu Völsunga 6-2. Fjöldi fólks mætti á völlinn og er þetta líklega með sterkari heimavöllum landsins í 4. flokki kvenna. Annar leikur hátíðarinnar fer fram í kvöld, föstudag, kl. 17 þegar meistaraflokkur kvenna tekur á móti besta liði deildarinnar, sameiginlegu liði Aftureldingar og Fram. Hreint út sagt ótrúlegt að Einherji spili við sameiginlegt lið Aftureldingar úr Mosfellsbæ og stórveldisins Fram. Stelpurnar þurfa á öllum stuðningi að halda og því er að fjölmenna á völlinn! Á morgun klukkan 14 er komið að strákunum í meistaraflokki sem fá topplið Kára frá Akranesi í heimsókn. Má búast við hörkuleik í roki og rigningu. |
hátíðarhöld á 17. júní18.6.17
Í marga marga áratugi hefur Ungmennafélagið haldið utan hátíðarhöld Vopnfirðinga á 17. júní. Engin breyting varð á þetta árið og fóru hátíðarhöldin fram með nokkru hefðbundnu sniði. Skrúðganga fór frá Miklagarði kl. 14 en gengið var út á skólavöll þar sem hátíðardagskrá fór fram. Fánaberar voru Viktoría Einarsdóttir og Árni Fjalar Óskarsson. Við komuna á skólavöll hélt Magnús Már, formaður félagsins, stutta tölu um mikilvægi dagsins og sögu. Hann kynnti síðan í pontu fjallkonu þjóðhátíðardagsins þetta árið en hefð hefur verið fyrir því að velja stúlku úr nýútskrifuðum 10. bekk. Þetta árið þurfti þó að leita niður í 9. bekk og varð María Björt Guðnadóttir fyrir valinu og flutti ljóð Huldu; Hver á sér fegra föðurland. Ræðumaður dagsins var Bjartur Aðalbjörnsson. Að ræðuhöldum loknum hófust leikir á sparkvellinum með þátttöku ungra Einherja. Yngstu iðkendurnir riðu á vaðið með stuttu knattspyrnuleik og í kjölfarið stýrðu Magnús, Matthildur Ósk og Einar Björn leikjum fyrir alla yngri iðkendur. Veðurguðirnir blessuðu hátíðarhöldin á meðan þau stóðu hæst með logni, hlýindum og sólarskímu á köflum. Við lok dagskrár fór að rigna og mátti ekki tæpara standa. Hátíðargestir voru líklega fegnir að komast inn í hátíðarkaffi í Miklagarði kl. 16. Fjöldi fólks mætti í kaffi þar sem boðið var upp á dýrindiskræsingar. Fögnuður sem þessi byggist að öllu leyti á þátttöku Vopnfirðinga og vinnu Einherja. Ungmennafélagið þakkar öllum sem komu að deginum kærlega fyrir frábæran dag. |
Tveir leikir einherja14.6.17
Vikan hófst með leik meistaraflokks kvenna á Bessastaðavelli á sunnudag. Þær léku gegn liði Álftaness en töpuðu 3-1. Mark Einherja skoraði Thelma Guðný. Einherjaliðin fóru því stigalaus heim af höfuðborgarsvæðinu. Það er ekki slegið slöku við hjá Einherja en næst var komið að B-liði meistaraflokks karla sem ferðaðist á Reyðarfjörð á mánudagskvöld. Þar léku þeir við B-lið Leiknis og komust 2-0 yfir með mörkum frá Benedikt Blæ og Nathaphon. Leikurinn endaði þó með 3-2 sigri heimamanna en drengirnir héldu glaðir heim, ánægðir með skemmtilegan fótboltaleik. Næsti leikur Einherja er á föstudagskvöld þegar meistaraflokkur karla heimsækir Berserki á Víkingsvelli. |
Tvö töp á höfuðborgarsvæðinu10.6.17
Meistaraflokkar karla og kvenna léku sitthvorn leikinn á höfuðborgarsvæðinu í dag. Stelpurnar fóru á Seltjarnarnes og léku þar við Gróttu en töpuðu 0-3. Drengirnir heimsóttu Vængi Júpíters í Egilshöllina en Vængir eru í mikilli baráttu á toppnum í deildinni. Sá leikur endaði 1-3 fyrir Vængi en Sverrir Hrafn minnkaði muninn í 1-2 í seinni hálfleik. Ekki nógu góður dagur hjá Einherjaliðunum í dag en það sem stóð upp úr var stuðningurinn sem liðin fengu á báðum leikjum. Yfir 50 manns mættu á báða leiki til að styðja liðið. Svona mæting er ómetanleg fyrir félagið. |
sex núll sigur á sauðárkróki9.6.17
4. flokkur kvenna gerði sér ferð á Sauðárkrók í dag til þess að leika við sameiginlegt lið Tindastóls (Sauðárkróki), Kormáks (Hvammstanga) og Hvatar (Blönduósi). Stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 6-0. Sigurður Donys er þjálfari liðsins en stelpurnar eru nú með fullt hús stiga eftir tvo leiki. |
á fimmta tug einherja á ferðinni9.6.17
Það eru kannski ekki allir sem átta sig á því hversu svakalegur fjöldi kemur að starfi Einherja árið um kring og þá sérstaklega á sumrin. Fjöldi leikmanna, foreldra, sjálfboðaliða og stuðningsmanna taka á sinn hátt þátt í starfi Ungmennafélagsins. Komandi helgi er viðburðarík fyrir alla Einherja, leikmenn sem aðra, en fjórir útileikir eru á dagskrá hjá liðum Einherja um helgina og á fimmta tug leikmanna og þjálfara verða á ferð um landið. Fyrsti leikur helgarinnar fer fram á Sauðárkróki í dag kl. 15. Þá heimsækja stelpurnar í 4. flokki sameiginlegt lið Tindastóls, Kormáks og Hvatar. Í Reykjavík fara svo fram þrír leikir um helgina. Stelpurnar í meistaraflokki kvenna leika við Gróttu á Vivaldivellinum kl. 12 á morgun og við Álftanes á Bessastaðavelli kl. 14 á sunnudag. Strákarnir í meistaraflokki karla fara í Egilshöllina þar sem þeir leika við Vængi Júpíters kl. 16 á morgun. Stuðningurinn á suðvesturhorninu hefur verið til fyrirmyndar og búumst við við sama stuðningi í leikjum helgarinnar. Fjölmennum og hvetjum okkar fólk til sigurs! |
Ljósmynd vikunnar1.6.17
Gömul ljósmynd vikunnar er liður sem er að festa sig í sessi hjá okkur á heimasíðunni og á facebook-síðunni okkar. Í hverri viku reynum við að birta gamla ljósmynd tengda starfi Einherja. Við erum sífellt í leit að ljósmyndum af Einherjum og því biðlum við til þeirra sem eiga gamlar myndir í albúmum að hafa samband við okkur svo hægt sé að bæta myndum í safnið. Ljósmynd vikunnar er frá 26. júní 1991. Hún er af ungum og efnilegum piltum í 6. flokki, klæddum í appelsínugult og grænt á Vopnafjarðarvelli. |
4. flokkur kvenna með sigur31.5.17
Í gær spiluðu stelpurnar í 4. flokki kvenna sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu. Þær fengu Fjarðabyggð/Hött/Leikni í heimsókn á Vopnafjarðarvöll. Spilaður var 11 manna fótbolti en þetta er í fyrsta skipti í sögu Einherja sem teflt er fram 11 manna liði í 4. flokki kvenna. Leikurinn endaði með 2-1 sigri okkar stúlkna sem er glæsilegur árangur gegn sameiginlegu liði Austurlands. Framtíðin er björt fyrir kvennaflokka félagsins með þessar efnilegu stúlkur í grasrótinni. |
Appelsínugulir og grænir á toppnum28.5.17
Í gær, laugardag, fékk meistaraflokkur karla Ægi frá Þorlákshöfn í heimsókn. Þetta var fyrsti heimaleikur tímabilsins og við það tækfæri voru nýir búningar mfl. karla vígðir. Mfl. karla leikur í appelsínugulum og grænum búningum þetta sumarið en það hefur ekki gerst í u.þ.b. 18 ár. Fjölmargir stuðningsmenn fögnuðu því gríðarlega að sjá upprunalegu litina á ný. Fyrir leikinn var Einherji með sex stig en Ægir eitt. Tvær breytingar voru gerðar á byrjunarliði Einherja frá því í leiknum gegn Þrótti um síðustu helgi. Sigurður Donys var ekki með vegna meiðsla og kom Viktor Daði inn í hans stað. Heiðar kom aftur inn í liðið eftir meiðsli og Óliver byrjaði því á bekknum. Á 39. mínútu fengu Einherjar vítaspyrnu eftir að spyrna frá Bjarti fór í hönd leikmanns Ægis. Todor Hristov fór á punktinn og skoraði. Á 44. mínútu tvöfaldaði Heiðar forystu Einherja eftir sendingu frá Todor Todorov; 2-0 í hálfleik. Seinni hálfleikur var erfiður en Einherjaliðið lá aftarlega á vellinum til að verja forystu sína. Sókn Ægismanna þyngdist aðeins þegar leið á hálfleikinn og fengu þeir vítaspyrnu á 76. mínútu sem þeir skoruðu úr. Síðustu mínútur leiksins voru æsispennandi, mikill barningur og barátta. Litlu munaði að Ægismenn jöfnuðu metin á 95. mínútu en Karol tókst að bjarga á línu eftir mikinn atgang í vítateignum og 2-1 sigur Einherja staðreynd. Eftir leikinn situr Einherji á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eða níu stig. Tímabilið fer vel af stað hjá drengjunum en næsti leikur þeirra er á föstudagskvöld gegn sameiginlegu liði Dalvíkur og Reynis. |
Ljósmynd vikunnarGömul ljósmynd vikunnar er af liði meistaraflokks karla sumarið 1979.
Þetta sumar lék Einherji í F-riðli 3. deildar. Liðið vann riðilinn og endaði með 20 stig. Í kjölfarið tók liðið þátt í úrslitakeppni 3. deildar og endaði í öðru sæti í sínum riðli. Þjálfari þetta ár var Þormóður Einarsson en Sigurður Þorsteinsson, þjálfari Einherja 1977, var Þormóði til aðstoðar í úrslitakeppninni. Myndin er tekin á Menntaskólavellinum á Akureyri; líklega fyrir leikinn gegn Skallagrími í úrslitakeppninni laugardaginn 1. september 1979. Úr Degi 4. september 1979: „Næst léku saman Einherji og Skallagrímur. Einherji var betri aðilinn í þessum leik og vann auðveldan sigur. Þeir skoruðu þrjú mörk gegn engu.“ Efri röð f.v.: Sigurður Þorsteinsson (þjálfari), Gunnlaugur Björnsson, Baldur Kjartansson, Kjartan Kjartansson, Aðalbjörn Björnsson, Andrés Ásgeirsson, Einar Guðlaugsson, Kristján Davíðsson, Vigfús Davíðsson og Þormóður Einarsson (þjálfari). Neðri röð f.v.: Hafsteinn Sveinsson, Ólafur Ármannsson, Steindór Sveinsson, Sveinn Hreinsson, Páll Valur Björnsson, Helgi Ásgeirsson og Ingólfur Sveinsson. |
unGT LIÐ eINHERJA Á hÖFN24.5.17.
Meistaraflokkur kvenna heimsótti Sindra á Höfn í Borgunarbikarnum í gærkvöldi. Leikurinn endaði með 0-4 tapi og er liðið því úr leik í Borgunarbikarnum. Margir lykilleikmenn voru fjarverandi en vegna þess var ákveðið að sækja ungar og efnilega stelpur í yngri flokkana. Meðalaldur hópsins var átján og hálft ár en ein þrettán ára og tvær fjórtán ára stelpur spiluðu leikinn. Efri röð f.v.: Viktoría Einarsdóttir, Tinna Líf Kristinsdóttir, Borghildur Arnarsdóttir, Arna Eir Gunnarsdóttir, Alexandra Einarsdóttir og Doris Bacic. Neðri röð f.v.: Marta Elísdóttir, Áslaug Dóra Jörgensdóttir, Thelma Guðný Ragnarsdóttir, Debóra Dögg Jóhannsdóttir, Sóley Diljá Weywadt Sigurðardóttir og Gabríela Sól Magnúsdóttir |
Sigur í vogunum22.5.17.
Meistaraflokkur karla sótti Þrótt vogum heim á laugardag en bæði lið voru fyrir leikinn með þrjú stig. Ljóst var að leikurinn yrði erfiður en Þróttarar hafa náð sér í marga sterka leikmenn í vetur. Lið Einherja mætti vel stemmt til leiks, skipulagt, agað og samstillt. Á 45. mínútu kom Todor Hristov Einherja yfir með skoti eftir óbeina aukaspyrnu inn í teig. Stuttu áður hafði Sigurður Donys verið borinn slasaður af velli en vinstra hnéð á honum er illa farið og eru það hræðilegar fréttir fyrir Einherjaliðið. Liðið mætti þó enn einbeittara inn í síðari hálfleikinn og hóf vörn til að halda þremur stigum. Þróttarar sóttu stíft og endaði það með marki á 78. mínútu. Í framhaldi lágu Þróttarar á Einherjum en á 94. mínútu brutustu Einherjar fram í skyndisókn. Eftir gott samspil Fjölnis og Heiðars sendi Heiðar boltann fyrir markið þar sem Viktor Daði lúrði á fjærstönginni. Viktor Daði setti boltann snyrtilega uppi í markhornið fjær og leikmenn og stuðningsmenn ærðust af fögnuði. Þrjú stig staðreynd. Það er réttast að þakka stuðningsmönnum Einherja í stúkunni en þeir voru tólfti maður vallarins. Það er hreint út sagt ótrúlegt að 650 kílómetrum að heiman sé Einherjaliðið með fleiri stuðningsmenn í stúkunni en heimaliðið. Vonandi verður stuðningurinn svona í allt sumar! |
ljósmynd dagsins15.5.17.
Við höldum áfram að rifja upp gamla tíma. Ljósmynd dagsins er af liði meistaraflokks kvenna sumarið 1993. Efri röð frá vinstri: Helgi Már Þórðarson (þjálfari), Rebekka Rut Rúnarsdóttir, Eydís Ósk Hafþórsdóttir, Ásta Birna Ólafsdóttir, Svava Birna Stefánsdóttir, Þorgerður Þórðardóttir, Guðrún Lauga Ólafsdóttir, Adda Tryggvadóttir, Lísbet Alexandersdóttir, Sigríður Garðarsdóttir og Sigurjón Birgisson (þjálfari). Neðri röð frá vinstri: Alda Eir Helgadóttir, Berglind Wiium Árnadóttir, Linda Björk Stefánsdóttir, Bjarney Guðrún Jónsdóttir, Hilda Karen Garðarsdóttir, Bjarney Þóra Hafþórsdóttir, Katrín Huld Bjarnadóttir, Anna Dís Jónsdóttir, Kolbrún Eva Pálsdóttir og Aðalheiður Stefánsdóttir. |
Ljómandi helgi að ljúka hjá Einherjum.14.5.17.
Meistaraflokkarnir okkar stóðu sig með prýði en eins og áður hefur komið fram unnu drengirnir 0-4 sigur í Sandgerði í gær. Stúlkurnar sóttu gott útivallarstig á Neskaupsstað en þær gerðu 1-1 jafntefli við sameiginlegt lið Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis í dag. Þá spilaði 5. flokkur kvenna á Fjarðaálsmótinu í dag. Sigurður Donys, leikmaður Einherja og þjálfari yngri flokka, brunaði beint niður á Reyðarfjörð eftir lendingu á Egilsstöðum í morgun til þess að stýra liðinu. Stelpurnar stóðu sig vel en þær unnu alla sína fimm leiki. Sumarið er rétt að byrja! |
ljósmynd dagsins12.5.17.
Ljósmynd dagsins er af liði meistaraflokks karla sumarið 1985. Þjálfari var Snorri Rútsson en liðið vann sig þetta sumar upp úr C-deild í B-deild Íslandsmótsins eftir úrslitaleik við Magna á Grenivík. Efri röð frá vinstri: Baldur Kjartansson, Kristján Davíðsson, Guðjón Antoníusson, Svavar Halldórsson, Viðar Sigurjónsson, Björn Heiðar Sigurbjörnsson, Snorri Rútsson og Aðalbjörn Björnsson. Neðri röð frá vinstri: Ólafur Ármannsson, Einar Björn Kristbergsson, Helgi Ásgeirsson, Hreggviður Ágústsson, Hallgrímur Guðmundsson, Steindór Sveinsson og Stefán Guðmundsson. |
Margt um að vera9.5.17.
Mikið var um að vera hjá Einherja um síðastliðna helgi. Meistaraflokkur kvenna gerði sér lítið fyrir og sló sameiginilegt lið Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis út úr Borgunarbikarnum á sunnudag. Það vantaði nokkra sterka leikmenn í Einherjaliðið en það gerði lítið til og komust stelpurnar áfram eftir vítaspyrnukeppni. Þær mæta Sindra í næstu umferð. Leikmenn meistaraflokks karla voru boðaðir til æfingahelgar þar sem stilltir voru strengir fyrir fyrsta deildarleik. Æft var á Frímerkinu föstudag, laugardag og sunnudag og línurnar lagðar fyrir leikinn gegn Reyni í Sandgerði næstkomandi laugardag. 8. flokkur keppti á sínu fyrsta móti á Akureyri á laugardag en þau eru nýbyrjuð að æfa. Þau stóðu sig vel eins og 7. flokkur; flottir drengir þar á ferð. Tvær stúlkur úr 6. flokki spiluðu með UMFL og stefnt er að því að efla samstarf þessara tveggja félaga í sumar. Framtíðin er björt hjá Einherja! Meðfylgjandi eru myndir af krökkunum ásamt myndum sem Víglundur Páll, þjálfari Einherja, tók af Vopnafjarðarvelli með viku millibili; 1. og 8. maí. |
Fjölnir í Einherja14.5.17
Örvfætti Eyfirðingurinn Fjölnir Brynjarsson gekk til liðs við Einherja í febrúar og hefur leikið með liðinu í Lengjubikarnum. Fjölnir kemur frá KA en verður Einherjamaður í sumar. Bróðir Fjölnis, Freyr Brynjarsson, á fimm leiki með Einherja og tók þátt í ævintýrinu 2013 sem endaði með 4. deildarmeistaratitli Einherja. Þar sem Freyr fékk verðlaunapeninginn sinn aldrei afhentan tók Fjölnir glaður við honum fyrir hans hönd á æfingu í dag. |
Treflar til sölu11.5.17.
Knattspyrnusumarið nálgast hjá öllum flokkum félagsins. Áður en sumarið gengur í garð er tilvalið fyrir stuðningsmenn Einherja að kaupa sér Einherjatrefil. Treflarnir eru nýkomnir í hús frá Bretlandi og koma í tveimur litasamsetningum. Annars vegar eru það gömlu litirnir, orange og grænn, og hinsvegar orange og blár. Verð fyrir einn trefil er 3000 krónur og 5000 fyrir tvo. Umfram það kostar hver trefill 2500 krónur. Þeir sem vilja kaupa hafið samband við Bjart í skilaboðum eða í síma 843-9759. |
SAMIÐ VIÐ LEIKMENN15.03.17
Einherji gerði á dögunum leikmannasaminga við 12 leikmenn í meistaraflokki karla. Leikmennirnir eru eftirtaldir frá vinstri til hægri: Gunnlaugur Bjarnar Baldursson, Sigurður Donys Sigurðsson, Heiðar Aðalbjörnsson, Daníel Smári Magnússon, Sverrir Hrafn Friðriksson, Sigurður Jóhannsson, Viktor Daði Sævaldsson, Karol Walejko, Óliver Jóhannsson, Viktor Már Heiðarsson og Bjartur Aðalbjörnsson. Á myndina vantar Hemmert Þór Baldursson. 10 af þessum 12 leikmönnum eru uppaldir hjá félaginu en hinir tveir hafa leikið með liðinu undanfarin ár. Samtals eiga þessir 12 leikmenn yfir 630 leiki fyrir félagið en meðalaldur þessa hóps er tæp 22 ár. Það er fagnaðarefni fyrir Einherja að semja við svo efnilegan og góðan hóp leikmanna. |
Ráðning þjálfara9.3.17.
Ungmennafélagið Einherji hefur ráðið Víglund Pál Einarsson sem þjálfara meistaraflokks karla fyrir komandi tímabil en Víglundur þjálfaði lið Fjarðabyggðar á síðasta ári. Víglundur Páll er Vopnfirðingur og öllum hnútum kunnur hjá félaginu en hann á 81 meistaraflokksleik að baki með liðinu. Auk þess þjálfaði Víglundur Einherjaliðið þrjú tímabil á árunum 2013-2015 og gerði liðið að 4. deildarmeisturum árið 2013. Aðstoðarmaður Víglundar verður búlgarski kantmaðurinn Todor Hristov. Todor hefur leikið 35 leiki með Einherja frá því hann kom til félagsins árið 2015. Einherjamenn fagna ráðningu þeirra félaga og sjá fram á skemmtilegt sumar. _____________________________________ Um leið og tekin var mynd af þjálfarateyminu var ákveðið að nýta tækifærið og taka almennilega mynd af eðaldrengnum Oskars Dargis sem mætti á sína fyrstu æfingu í kvöld. |
Oskars dargis lentur á egilsstöðum8.3.17.
Lettneski markvörðurinn Oskars Dargis mun leika með Einherja í Lengjubikarnum og í 3. deildinni í sumar. Oskars er fæddur árið 1993 og lék með Einherja síðasta sumar. Oskars lenti á Egilsstöðum nú rétt í þessu og kemur til Vopnafjarðar í kvöld. Þjálfari, liðsmenn og stjórn félagsins bjóða hann velkominn aftur! |