VopnafjarðarvöllurÁ íþróttasvæði Vopnafjarðar eru tveir grasvellir í fullri stærð ásamt minna æfingasvæðið. Gamli völlurinn, Frímerkið eins og það er oft kallað, er mest notað til æfinga en nýi völlurinn til keppni. Ráðist var í framkvæmd nýja vallarins sumarið 2013 og var hann fyrst notaður sumarið 2014.
Við vellina stendur lítið vallarhús sem upphaflega var flugvallarskýli við Vopnafjarðarflugvöll. Einherji fékk húsið gefins á áttunda áratugnum og hefur það reynst félaginu vel. Húsið er þó orðið lélegt og er það krafa Einherja að byggt verði stórt hús við vellina sem hýsa á búningsklefa, geymslur og félagsaðstöðu Einherja. |
Íþróttahús VopnafjarðarÍþróttahúsið er er næsti nágranni Vopnafjarðarskóla sem nýtir húsið daglega að vetri fyrir íþróttakennslu. Íþróttasalurinn er 27 x 16 metrar eða um 445 m2 að stærð.
Ungmennafélagið Einherji hefur um árabil leigt sal íþróttahússins fyrir knattspyrnuæfingar félagsmanna að vetri og hin síðari ár fimleika að auki. Einstaklingar og hópar leigja tíma í sal en árið 2003 var ráðist í breytingar á áhorfendapöllum hússins og komið fyrir vel tækjum búinni líkamsræktarstöð. Í húsinu er einnig gufubað og búningsklefar þess þjóna sem slíkir að sumri fyrir knattspyrnufólk Einherja. |